breyting á deiliskipulagi
Bólstaðarhlíð 20
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 777
12. júní, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar dags. 12. febrúar 2020 ásamt bréfi dags. 12. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 20 við Bólstaðarhlíð, Ísaksskóli. Í breytingunni felst að skilgreina byggingarreit fyrir battavöll á lóð sem er 20 x 13 metrar ásamt því að hækka núverandi girðingu á auðausturhorni lóðar, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð ehf. dags. 12. febrúar 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 21. apríl 2020 til og með 19. maí 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Hermann Jónasson dags. 17. maí 2020 og Ingibjörg Halldórsdóttir dags. 18. maí 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. maí 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103628 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008421