breyting á deiliskipulagi
Blikastaðavegur 2-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. ágúst 2020 var lögð fram fyrirspurn Arkís arkitekta ehf. , dags. 15. júlí 2020, ásamt bréfi dags. 10. ágúst 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðarinnar nr. 2-8 við Blikastaðaveg sem felst í að skipta lóðinni upp í 3 lóðir og að samhliða þeirri uppskiptingu yrði endurskoðun byggingarreita, skilmála, bílastæðakrafna og byggingarheimilda, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta 13. júlí 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2020.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2020 samþykkt.