Stækka vöruskemmu 3 - mhl.05
Stuðlaháls 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 786
28. ágúst, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. ágúst 2020 var lögð fram umsókn Áfengis-/tóbaksverslunar ríkisins dags. 12. ágúst 2020, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna Stuðlaháls 2. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur að stærð ca. 10 x15 m á suðurhluta lóðar, samkvæmt uppdr. Karls-Eriks Rockén arkitekts dags. 24. ágúst 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Stuðlahálsi 1.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7. 6. sbr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111045 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021865