staðsetning Sportkafarafélags Íslands
Nauthólsvík - Naustavogur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 773
15. maí, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Nauthólsvíkur vegna aðkomutengingar við fyrirhugaða Fossvogsbrú á um 350 m kafla nýrrar tveggja akreinar akbrautar fyrir almenningssamgöngur sem fellur innan deiliskipulagsins. Kaflinn er hluti af stærri framkvæmd sem er brú yfir Fossvog fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi vegfarendur. Samhliða breytingunni eru gerðar nokkrar fleiri breytingar á skipulaginu og það uppfært miðað við núverandi ástand. Lagðir eru fram uppdr. Landmótunar dags. 11. nóvember 2019 br. 15. maí 2020. Einnig er lögð fram greinargerð Landmótunar dags. 11. nóvember 2019 br. 15. maí 2020.. Jafnframt er lögð fram fornleifaskrá og húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 2019. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2019 til og með 29. janúar 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur dags. 23. janúar 2020, Isavia dags. 29. janúar 2020 og íbúaráð Miðborgar og Hlíða dags. 29. janúar 2020. Einnig er lagt fram minnisblað Borgarlínunnar dags. 30. apríl 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107480 → skrá.is
Hnitnúmer: 10090426