Stækkun húss og breyting lóðar
Brekkustígur 9
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 773
15. maí, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta lóðamörkum milli lóða Öldugötu 44 og Brekkustígs 9 og til þess að byggja 6 íbúðir í nýbyggingum og með breytingum og viðbyggingum verði gerðar 2 íbúðir í núverandi húsum á lóð nr. 44 við Öldugötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun: x.xx ferm., x.xx rúmm. Erindi fylgir bréf Minjastofnun dags. 25. febrúar2020, afrit af beiðni um sölu á lóðarhluta Drafnarstígs 4 dags. 23. maí 2019, skýrsla Fornleifastofunnar um könnun á fornleifum á lóðunum Brekkustíg 9 og Öldugötu 44 dags. júlí 2019, greinargerð Eflu verkfræðistofu um val og hönnun brunavarna dags 6. apríl 2020 ásamt yfirliti breytinga dags. 20. apríl 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Brekkustíg 4a, 5, 5a, 6, 6a, 6b, 7, 8, 10 og 12, Öldugötu 40, 41, 42, 45, 47, 50 og 51, Bræðraborgarstíg 16 og 18 og Drafnarstíg 4, 5, 5a, 7 og 9.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100328 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017056