breyting á deiliskipulagi
Ármúli 3
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn LF2 ehf. dags. 17. júlí 2020, varðandi breytingu á deiliskipulagi Lágmúla, Háaleitisbrautar, Ármúla og Hallarmúla, vegna lóðarinnar nr. 3 við Ármúla. Í breytingunni felst að bæta við byggingarreiti fyrir stiga utanhúss vegna flóttaleiðar og til að bæta aðgengi hreyfihamlaðra að 2. hæð við Hallarmúla 4, samkvæmt uppdr. Arkþing/Nordic dags. 17. júlí 2020.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.