framkvæmdaleyfi
Norðurstígur og Nýlendugata
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 775
29. maí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2020 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 4. maí 2020 um framkvæmdaleyfi vegna endurgerðar á Norðurstíg milli Vesturgötu og Geirsgötu og Nýlendugötu milli Norðurstígs og Ægisgötu. Einnig er lagt fram teikningasett dags. í maí 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. maí 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29. maí 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.