(fsp) breyting á deiliskipulagi
Krókháls 7A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 777
12. júní, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa var lögð fram umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 26. mars 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7A við Krókháls. Í breytingunni felst að hæðarkóti byggingar er lækkaður til samræmis við Hestháls 14, byggingarreitur 1. hæðar er stækkaður til vesturs og austurs ásamt því að lengjast fjóra metra til suðurs, byggingarreitur 2. og 3. hæðar lengist til vesturs, nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0.7 í 0.9, aðgengi að 1. hæð verður frá Hesthálsi, aðgengi að 2. og 3. hæð verður frá Krókhálsi o.fl. samkvæmt uppdr. K.J. ARK ehf. dags. 24. mars 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hesthálsi 14, Krókhálsi 5, 5A, 5B, 6, 7, 10 og 12 og Lynghálsi 7.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

110 Reykjavík
Landnúmer: 223593 → skrá.is
Hnitnúmer: 10115524