Stækka bílgeymslu
Sólvallagata 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 779
26. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Stefáns Arnar Stefánssonar dags. 4. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hólatorgsreits vegna lóðarinnar nr. 10 við Sólvallagötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit norðan við húsið um ca. 2. metra, samkvæmt uppdr. Argos ehf. dags. 15. apríl 2020. Einnig eru lagðir fram aðaluppdrætti dags. 10. desember 2019. Jafnframt er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. mars 2020 og Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 25. júní 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 26. maí 2020 til og með 23. júní 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar