Gluggabreyting
Vesturgata 67
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Félagsbústaða dags. 23. mars 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi milli Seljavegar og Ánanausta vegna lóðarinnar nr. 67 við Vesturgötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit um 20 cm. til suðurs að garði, heimilt verði að byggja 4 hæðir í stað 2,5 hæðir, svalir megi ná 1,7 metra út fyrir byggingarreit að garði, götuhlið hússins skal taka tillit til aðliggjandi húsa eins og kostur er, lyftuhús má ná 0,8 metra upp fyrir hámarkskvóta vegghæðar, lóð er stækkuð að framanverðu og þar heimilt að setja bílastæði fyrir hreyfihamlaða, sorpgerði og gróður, byggingarmagn eykst og fjöldi íbúða verður 6 ásamt sameiginlegum rýmum á jarðhæð, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 3. apríl 2020. Tillagan var auglýst frá 20. maí 2020 til og með 1. júlí 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Halldóra Haraldsdóttir dags. 30. júní 2020, Stefanía Helga Skúladóttir dags. 30. júní 2020 og 8 eigendur íbúða að Vesturgötu 65A og 65 dags. 30. júní 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100224 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122137