Viðbygging
Skólavörðustígur 31
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 780
3. júlí, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. apríl 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. apríl 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu ásamt því að gera inndregnar svalir á eldri hluta í húsi á lóð nr. 31 við Skólavörðustíg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun: 100,4 ferm., 280,3 rúmm. Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018 við fsp. SN180306, umsögn Minjastofnunar dags. 5. júní 2018 og afrit af tölvupósti vegna fellingu trjáa dags. 14. júní 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt að framlengja athugasendafrest til og með 31. júlí 2020.
Jafnframt er lagfærð bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. maí. Rétt bókun er: Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Skólavörðustíg 29a , 33 ,og 33a og Bjarnarstíg 10, 11 og 12.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.