Bílskýli, útigeymsla, skyggni o.fl. - Endurnýjun
Laugarásvegur 21
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 776
5. júní, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að reisa bílskýli og útigeymslu við lóðarmörk, skyggni yfir aðalinngang einbýlishúss, ásamt breytingum tengdum endurskipulagningu lóðar, s.s. landmótun, uppsetningu stoðveggja og staðsetningu á heitum potti, bílastæðum ofl. á lóð nr. 21 við Laugarásveg.
Stækkun: 45.4 ferm., 136.2 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.380.4 síðast breytt í ágúst 1971, teikningasett undirrituð af lóðarhöfum Kleifarvegs 12 og Laugarásvegs 23 dags. 27. maí 2020 og yfirlit breytinga. Gjald kr. 11.200
Svar

Á fundi skipulagsfulltrúa þann 25. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna erindið.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104767 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016687