bréf íbúaráðs Laugardals vegna erindi íbúa um skipulagsmál og umgengni
Vogabyggð svæði 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 779
26. júní, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. júní 2020 var lögð fram umsókn Þorsteins Inga Garðarssonar dags. 29. maí 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæði 1 vegna lóðar nr. 1.6. Í breytingunni felst m.a. að heimila aukið byggingarmagn og reisa íbúðir í þremur húshlutum ofan á bílgeymslu, fækka bílastæðum í götu, gera þemagarð á borgarlandi austast á svæðinu ásamt því að breyta lögun lóðar og götu, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Jvantspijker og Teiknistofunnar Traðar dags. 22. maí 2020. Einnig eru lagðir fram skilmálar fyrir húsbyggingar og mannvirki á lóð dags. 26. janúar 2018 br. 22. maí 2020, minnisblað Eflu dags. 12. mars 2019 um hljóðmælingar og umboð Gelgjutanga ehf. dags. 25. maí 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1231/2018.