Breytingar - BN058043
Víðimelur 29
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 790
25. september, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og gera fimm sjálfstæðar íbúðir í húsinu, fjarlægja reykháf sem snýr að götuhlið, stækka svalir, síkka glugga í kjallara og setja nýja kvisti og þakglugga á hús á lóð nr. 29 við Víðihlíð.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á útliti hússins, bréf Minjastofnunar dags. 2. júlí 2020 og skýrsla um íbúðaskoðun dags. 16. september 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Víðimel 27, 30 og 31 og Reynimel 26, 28 og 32.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106322 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014552