breyting á deiliskipulagi
Hringbraut 116/Sólvallagata 77 - Steindórsreitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 774
25. maí, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2020 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 11. maí 2020 þar sem ekki er gerð athugasemd við birtingu auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda þegar brugðist hefur verið við eftirfarandi:
Gera þarf grein fyrir hvernig brugðist er við umsögn vegagerðarinnar þar sem m.a. kemur fram ábending um að merkja veghelgunarsvæði á uppdrátt. Sýna þarf inn- og útakstursleið í bílakjallara á uppdr. 1/3. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2020 og uppfærður uppdráttur dags. 27. júní 2019, síðast breytt 21. maí 2020.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2020 samþykkt.