Svalir á bakhlið hússins
Stangarholt 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 792
9. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir svölum á íbúðir 0101 og 0201 á suðurhlið og koma fyrir hurðum út á þær í húsinu á lóð nr. 10 við Stangarholt. Erindi var grenndarkynnt frá 8. september 2020 til og með 6. október 2020. Engar athugasemdir bárust.
Umsögn skipulags frá 16. mars 2018 fylgir þar sem Jákvætt er að grenndarkynna erindi ef það berst. Samþykki meðeigenda að Stangarholti 10-12 dags. 1 júní 2020 fylgir. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103276 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020239