(fsp) breyting á deiliskipulagi
Nýr Landspítali við Hringbraut
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. ágúst 2020 var lögð fram umsókn Háskóla Íslands dags. 22. júlí 2020, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut. Í breytingunni felst að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða að Eirbergi (nr. 16), húsi Heilbrigðisvísindasviðs HÍ. Annars vegar að gerður nýr byggingarreitur fyrir lyftuhúsi ásamt anddyri í suðvesturkverk ásamt því að koma fyrir útitröppum og hins vegar að gerður er nýr byggingarreitur fyrir pallalyftu í norðausturkverk, samkvæmt uppdr. Spital dags. 22. júlí 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.