framkvæmdaleyfi
Gufuneshöfði
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 776
5. júní, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kanon arkitekta ehf. dags. 11. mars 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna Gufuneshöfða. Í breytingunni felst að leyfileg hæð masturs verði um 15 metrar í stað 10 metrar ásamt því að akfær aðkomuslóði verður varanlegur en ekki tímabundin, samkvæmt uppdrætti Kanon arkitekta ehf. dags. 17. mars 2020. Einnig er lagður fram tölvupóstur Umhverfisstofnunar dags. 18. mars 2020 þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Tillaga var grenndarkynnt frá 27. apríl 2020 til og með 25. maí 2020. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Gunnar Hauksson og Guðrún H. Ingimarsdóttir dags. 12. maí 2020, Jón Ágúst Guðmundsson dags. 25. maí 2020 og Jóhannes Þorkelsson dags. 25. maí 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. maí 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.