Breyta gluggum, hurðum og innra skipulagi á 1.hæð, verslun í 3 vinnustofur.
Fálkagata 18
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 787
4. september, 2020
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. ágúst 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. hæð, breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í þrjár vinnustofur og geymslur tengdar þeim í kjallara, einnig er stigi milli kjallara og fyrstu hæðar fjarlægður og aðkomu að kjallara breytt þannig að inngangur verður frá norðurhlið hússins á lóð nr. 18. við Fálkagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 27. júlí 2020 og yfirlit yfir breytingar. Gjald kr. 11.200
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020.