breyting á deiliskipulagi
Austurstræti 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 786
28. ágúst, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. ágúst 2020 var lögð fram umsókn Arktíka ehf. dags. 13. júlí 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðar nr. 4 við Austurstræti. Í breytingunni felst að afmarkaður er nýr byggingarreitur á 2. hæð yfir núverandi portbyggingu, ásamt því að byggingarmagn á lóð eykst, samkvæmt uppdr. Arktíka ehf. dags. 10. júlí 2020. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 30. júní 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Veltusundi 3 og 3b og Austurstræti 6.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7. 6. sbr. gr. 12 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100845 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007451