Nýr bílskúr
Sólvallagata 23
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 777
12. júní, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr klæddan að utan með timburborðum á lóð nr. 23 við Sólvallagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. janúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júní 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2020. Stærð bílskúr er : 36,0 ferm., 111,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sólvallagötu 18, 20, 21, 22 og 25 og Ásvallagötu 8, 24 og 26.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.