Stækkun á svölum 1.og 2.hæð
Ásvallagata 13
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 776
5. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. apríl 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að setja svalir á suðurhlið 1. og 2. hæðar íbúðarhúss á lóð nr. 13 við Ásvallagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 5. maí 2020 til og með 2. júní 2020. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki lögráðamanns og lögerfingja eiganda íbúðar 01-0101 dags 4. mars 2020, afrit af skipunarbréfi lögráðamanns dags. 6. febrúar 2019, greinargerð hönnuðar dags 25. febrúar 2018 og afrit af tölvupósti er varðar lokaúttekt. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. apríl 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. apríl 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. apríl 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101276 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007328