Þaksvalir og kvistur
Tjarnargata 10C
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 791
2. október, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist og koma fyrir þaksvölum á norðvesturhlið ósamþykktrar íbúðar 0401 í húsi á lóð nr. 10C við Tjarnargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 2. september 2020 til og með 30. september 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Emilía Kristín Bjarnason dags. 21. september 2020 og Gústaf Þór Tryggvason hrl. dags. 21. september 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. febrúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. febrúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. febrúar 2020. Samþykki meðeigenda fylgir dags. 8. nóvember 2019. Stækkun: 3,4 ferm., 7,6 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.