Þaksvalir og kvistur
Tjarnargata 10C
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. ágúst 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist og koma fyrir þaksvölum á norðvesturhlið ósamþykktrar íbúðar 0401 í húsi á lóð nr. 10C við Tjarnargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. febrúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. febrúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. febrúar 2020. Samþykki meðeigenda fylgir dags. 8. nóvember 2019. Stækkun: 3,4 ferm., 7,6 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Tjarnargötu 10b og 10d og Suðurgötu 13 og 15.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.