framkvæmdaleyfi
Kjalarnes
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 790
25. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. september 2020 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 15. september 2020 um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðarakerfis í dreifbýli Reykjavíkur þ.e. Kjalarnes, Kollafjörð, Álfsnes, sunnan Úlfarsfells og á nokkrum stöðum við Suðurlandsveg, samtals alls 136 staðir sbr. staðfangalista Eflu. Einnig eru lagðir fram uppdrættir Eflu dags. 9. júlí 2020 og verkáætlun ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. september 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. september 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.