Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 787
4. september, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn ASK Arkitekta ehf., dags. 5. september 2019, varðandi breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar - Vesturhafnar vegna lóðanna nr. 16-32 við Fiskislóð og nr. 39-93 við Grandagarð. Í breytingunni felst að skipta svæðinu upp í fimm lóðir, niðurrifi eldri bygginga og byggingu nýrra og hærri húsa eða 2-4 hæðir ásamt byggingu bílastæðahúss fyrir um 300 bíla, samkvæmt uppdráttum ASK Arkitekta ehf. dags. 18. ágúst 2018. Einnig er lögð fram húsakönnun fyrir Örfirisey og Granda dags. 2009, minnisblað teiknistofunnar Stiku dags. 28. maí 2019, minnisblað Eflu dags. 20. júní 2019, tvær skýringamyndir teiknistofunnar Stiku ódags., og kynningarhefti ASK Arkitekta ehf. dags. 5. september 2019. Jafnframt er lögð fram drög að viljayfirlýsingu dags. í júní 2019, umsögn Faxaflóahafna sf. dags. 17. september 2019, bréf Faxaflóahafna sf. dags. 20. september 2019 og minnisblað Faxaflóahafna fs. dags. 25. maí 2020. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2020 til og með 31. ágúst 2020. Eftirfarandi sendu inn athugasemdir/umsögn: Veitur dags. 31. ágúst 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211