Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 377
Annað
‹ 23
24
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Óskað er eftir upplýsingum um stöðu undirbúnings 1. lotu Borgarlínu, það er kaflans frá Nauthólsvegi að Hlemmi og útfærslu í miðborg (Kvos): 1. Hver er staða deiliskipulags fyrir þennan kafla og hvenær liggur fyrir endanleg ákvörðun um útfærslu? 2. Í áliti Skipulagsstofnunar á umhverfismati Borgarlínu kemur fram að endanleg útfærsla í þessum hluta liggi ekki fyrir og verði ákveðin á deiliskipulagsstigi. Jafnframt er ljóst að ýmsir valkostir eru enn til skoðunar. - Hefur verið tekin formleg ákvörðun um hvaða valkostur verði fyrir valinu í Kvosinni? 3. Fyrir liggur að umferð um Fríkirkjuveg er um 7–8 þúsund bílar á dag, sem gerir götuna að einni af lykiltengingum í miðborginni. Samhliða hafa komið fram valkostir í gögnum Borgarlínu og umfjöllun þar sem: - gert er ráð fyrir verulegri skerðingu á umferð - eða jafnvel að einungis Borgarlínuvagnar fái að aka um Fríkirkjuveg. Er til skoðunar valkostur sem felur í sér að Fríkirkjuvegur verði lokaður að hluta eða öllu leyti fyrir almenna bílaumferð, eða að umferð verði takmörkuð þannig að hún hafi í reynd sömu áhrif? 4. Í áliti Skipulagsstofnunar kemur fram að breytingar á umferðarskipulagi verði umfangsmiklar og hafi í för með sér tilfærslu umferðar á aðrar götur og verulegar breytingar á samgöngumynstri. - Hvernig hefur verið metið sérstaklega hvaða áhrif lokun eða veruleg takmörkun á Fríkirkjuvegi myndi hafa á umferð í miðborg og nærliggjandi gatnakerfi? 5. Ef slíkir valkostir eru enn til skoðunar: - Hvaða valkostir liggja fyrir í dag varðandi Fríkirkjuveg og Lækjargötu? - Hvaða valkostir hafa verið felldir út og á hvaða forsendum?