Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 4 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 377
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn TÓ arkitekta ehf., dags. 5. mars 2026, um breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar 1. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta notkun hússins þannig að heimilt verði að reka þar hótel með allt að 90 herbergjum. Breytingin felur einnig í sér heimild til hækkunar hússins um eina inndregna hæð ásamt heimild til að grafa frá húsinu austanverðu til að sækja birtu ofan í kjallara, samkvæmt uppdr. TÓ arkitekta, dags. 14. apríl 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 1. apríl 2026, og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2026.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.