Erindi íbúaráðs Grafarvogs, vegna gönguþverana á Hallsvegi og víðar - R20010388, USK2021090006
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 113
8. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf íbúaráðs Grafarvogs, dags. 2. september 2021, um bókun íbúaráðsins vegna gönguþverana á Hallsvegi og víðar.
Bókanir og gagnbókanir
  • Flokkur fólksins
    Erindi íbúaráðs Grafarvogs, vegna gönguþverana er lagt fram á fundi skipulags- og samgönguráðs. Enn er kvartað yfir því að hægt gengur að klára einföld atriði svo sem að gera almennilegar aðstæður fyrir gangandi vegfrendur. Nú hafa skipulagsyfirvöld gefið út yfirlýsingar um að gangandi vegfarendur skuli alltaf hafa forgang en samt virðist ekki vera hægt að tryggja öryggi þeirra, ekki einu sinni á gangbrautum. Fulltrúi Flokks fólksins telur að brýnt sé að ganga í málið án tafar.