Tillaga stýrihóps um innleiðingu íbúaráða, umsagnarbeiðni - USK2021080007, R19100342
Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 111
25. ágúst, 2021
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 3. ágúst 2021, þar sem óskað er umsagnar skipulags- og samgönguráðs um tillögu stýrihóps um innleiðingu íbúaráða.
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.

Bókanir og gagnbókanir
  • Flokkur fólksins
    Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir að rétt sé að það tekur tíma að þróa starf íbúaráðanna bæði innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar og meðal íbúa í hverfum. Margar af tillögum stýrihópsins eru ágætar. Stýrihópurinn leggur til að íbúaráði Miðborgar og Hlíða verði skipt í tvö íbúaráð. Sama ætti að gilda um Breiðholtið sem er stórt hverfi, eiginlega þrjú hverfi. Þessi breyting ætti að gerast strax og prófa hana út kjörtímabilið og má þá endurskoða hana við upphaf næsta tímabils. Vandi íbúaráðanna er hversu pólitísk þau eru. Meirihlutinn í þeim, hinn pólitíski yfirskyggir án efa oft skoðanir minnihluta og borgarbúa. Meirihlutinn hefur oft sínu fram í krafti valds.  Hugsa þarf íbúaráðin sem rödd borgarbúa og þurfa ráðin að hlusta á íbúana og taka mál inn á fundina sem óskað er eftir. Gott er að „ráðin“ fái aukna ábyrgð við mótun nærþjónustu. Íbúaráð ættu að  taka afstöðu til flestra stærri mála sem hverfin snerta og má ímynda sér að meirihluti íbúaráðs hafi endanlegt úrslitavald í sumum málum. Ekki ætti að setja íbúaráðum stífar og ítarlegar reglur. Íbúaráðin eru nefnd sem samskiptaleið í drögum um lýðræðisstefnu þannig að það er mikilvægt að þau virki sem slík.