Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, fyrir hönd íbúa í Úlfarsárdal,svar - USK2021030112
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 110
7. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 1. júlí 2021.
Bókanir og gagnbókanir
  • Flokkur fólksins
    Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram ýmsar spurningar sem íbúar í Úlfarsárdal höfðu ítrekað reynt að fá svör við en ekki fengið. Um var að ræða spurningar sem lutu að umhverfinu og öryggismálum m.a. Fram kemur í svari að öllum þessum spurningum hefur verið svarað en tekið hafi tíma að fá svör frá mismunandi skrifstofum. Fulltrúi Flokks fólksins vonast til að íbúum sem hafa verið að spyrja um mikilvæg atriði í Úlfarsárdal finnist svörin fullnægjandi og að samskipti þeirra og skipulagsyfirvalda verði betri í framtíðinni.