Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um framkvæmdir við Háuhlíð - USK2020100019
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 84
14. október, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð er fram fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem barst borgarráði 1. október 2020 og var vísað til meðferðar skipulags- og samgönguráðs.
Svar

Miklar framkvæmdir eru við Háuhlíð þar sem mikill trjágróður hefur verið tekinn. Þessar framkvæmdir hafa farið fram án þess að íbúar hafi verið upplýstir um framkvæmdirnar eða haft samráð við þá um breytingar á svæðinu. Hvaða framkvæmdir eiga sér stað þarna og hver er tilgangurinn með þeim? Lögð er áhersla á að haft sé samráð við íbúa og þeir upplýstir um breytingar og framkvæmdir í nágrenni við þá.