Kynning, Laugavegur göngugata, deiliskipulag 2. áfanga
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 81
9. september, 2020
Annað
Fyrirspurn
Kynning á drögum að deiliskipulagstillögu.
Svar

Kynnt.

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Bókanir og gagnbókanir
  • Miðflokkur
    Hér er lýst yfir algjörum forsendubresti. Borgarstjóri og meirihlutinn tekur einhliða ákvörðun um lokun Laugavegarins allt árið um kring einungis 21 degi fyrir fyrirhugaða opnun fyrir bílaumferð. Fyrirvarinn er enginn. 30 milljónum var eytt í sérstakt kynningarátak á þessu svæði í sumar og tilgangurinn var að „glæða miðbæinn lífi“. Nú er ljóst að þeim peningum var fleygt þráðbeint út um gluggann en gæluverkefnin þurfa sitt. Nú er verið að samþykkja bráðabirgðaverkferli um að hafa Laugaveginn og þær götur í nágrenni hans sem skilgreindar hafa verið göngugötur lokaðar fyrir bílaumferð til 1. maí 2021 eða þar til nýtt deiliskipulag tekur gildi um varanlega lokun. Þessi ákvörðun kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Með öðrum orðum – það er búið að skella Laugaveginum í lás til framtíðar án nokkurs samráðs við rekstraraðila sem þó eru að berjast í bökkum að halda uppi þjónustu svo að miðbærinn sé ekki steindauður. Þetta eru ískaldar kveðjur frá meirihlutanum í upphafi hausts, ekki bara til rekstraraðila heldur líka landsmanna allra. Borgarstjóri og meirihlutinn eiga ekki Laugaveginn og nágrenni hans. 
  • Flokkur fólksins
    Deiliskipulagstillögur eru lagðar fram. Fulltrúa Flokk fólksins finnst erfitt að átta sig á þessu og bíður eftir að fá gögnin með málinu og að kynningin verði þá endurtekin. Ómögulegt er að rýna í myndir á skjá þar sem reitir eru sýndir og smátt letur. Hér er um mikilvægt mál að ræða ekki síst í ljósi þess hvernig komið er fyrir þessu svæði. Þar er nú varla hræðu að sjá. Flótti verslana í hrönnum og svo kom COVID. Spurning er hvernig þróunin verður, hvenær næst að lífga við þetta svæði?