Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins, varðandi rekstraraðila á Laugaveginum, umsögn - USK2020090017
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 80
2. september, 2020
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
‹ 34. fundarliður
35. fundarliður
Fyrirspurn
Mikil óvissa er uppi hjá rekstraraðilum í miðbænum og jafnframt þeim sem jafnvel huga að rekstri á þessu svæði hvað varðar lokun fyrir bílaumferð. Þegar ákvörðun var tekin í vor voru ekki gefnar haldbærar upplýsingar um hvað tæki við eftir 1. október og svörin voru mjög loðin. 1. Hvaða áform eru uppi frá og með 1. október nk. hvað varðar lokun Laugavegarins og annara gatna í miðbænum fyrir bílaumferð? 2. Hvenær er ákvörðunar að vænta hvort svæðið verði lokað eða opið fyrir bílum?
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagssvið, Skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.