Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Síðast Vísað frá á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 70
6. maí, 2020
Vísað frá
Fyrirspurn
Flokkur fólksins leggur til að skipulagsyfirvöld eigi alvöru viðræður og samstarf við rekstraraðila miðbæjarins til að ræða björgunaraðgerðir s.s. hvernig markaðsátak hægt er að fara í fyrir miðborgina. Fara þarf í almennar aðgerðir sem nýtast öllum. Almennar aðgerðir þurfa m.a. að fela í sér samvinnu við bílastæðasjóð og Strætó b sem gefa þurfa eftir í gjöldum til að laða að fólk. Breyta verður aksturstefnum á Laugavegi þannig að ekið verði í vesturátt niður alla götuna. Opna þarf hliðin enda er nú komið í lög að um þessar götur megi P merktir bílar aka og leggja. Það hefur komið fram í niðurstöðum m.a. Maskínu könnunar að miklar áhyggjur eru af fækkun fólks í miðbænum. Fyrir veirufaraldurinn var orðið fátt um annað fólk í bænum en ferðamenn. Götulokanir á svæðinu höfðu haft þau áhrif að verslun og viðskipti hrundi í miðbænum utan veitingahúsareksturs. Covid-19 áhrifin bættust síðan ofan á og mun sennilega líða talsverður tíma áður en sjá má stóra hópa ferðamanna í bænum. En orsök faraldursins engum að kenna. En flótti verslana af svæðinu er á ábyrgð meirihlutans. Þrátt fyrir hávær mótmæli og beiðni um samráð ákvað meirihlutinn að halda sig við einhliða ákvörðun sína um götulokanir eins og þau tilkynntu í   meirihlutasáttmálanum. 
Svar

Vísað frá með atkvæðum fulltrúa Viðreisnar og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.

Bókanir og gagnbókanir
  • Viðreisn, Píratar
    Ólíkt því sem tillagan heldur fram er mikið samstarf í gangi við rekstraraðila miðbæjarins. Unnið er með stórum hóp hagaðila í miðborginni og starfsfólki Reykjavíkur með það að markmiðið að móta saman aðgerðarpakka til að bregðast við afleiðingum af Covid-19 fyrir miðborgina. Var hópurinn stofnaður á stórum stöðufundi hagaaðila í verkefnisstjórn miðborgarmála. Hagsmunasamtök í miðborginni auk verkefnisstjóra miðborgarmála hjá Reykjavíkur sjá um hópinn. Meðlimir eru núna 202 og er hópurinn mjög virkur. Auk þessa er búið fá aðstöðu í Aðalstræti 2 þar sem verkefnisstjórar sem sinna miðborginni munu koma sér fyrir og vera til staðar fyrir rekstraraðila í sumar, bæði hvað varðar miðlun upplýsinga, aðstoð við leyfisveitingar og allskyns er varðar borgarlandið. Sviðsstjóri USK hefur einnig hafið samtal við forsvarsmenn veitingaaðila sem hafa áhuga á samstarfi um Kvosina, Laugaveg og Óðinstorg. Tillögu þessari er því vísað frá og ásökunum um skort á alvöru samstarfi alfarið hafnað.