Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks, vegna tafa á framkvæmdum við Hverfisgötu.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 53
6. nóvember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Verulegar tafir hafa orðið á framkvæmdum við Hverfisgötu en þeim átti upphaflega að vera lokið í ágústmánuði síðastliðnum. Þessar tafir hafa leitt til þess að rekstraraðilar hafa séð sig knúna til að hætta rekstri.  Óskað er skýringa á þessum töfum og hvenær er áætlað að framkvæmdum ljúki?  Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds.