Fyrirspurn frá áheyrnarfulltrúa Flokk fólksins, fyrirspurn vegna Strætó
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 44
21. ágúst, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulags- og samgönguráðs 6. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn áheyrnafulltrúa Flokk fólksins Þórs Elís Pálssonar varðandi kvartanir sem væntanlega berast Strætó BS.   Áheyrnafulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá upplýsingar um allar kvartanir sem kunna að hafa borist Strætó BS frá notendum þjónustunnar og sem varða þjónustuna. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig Strætó BS hafi afgreitt kvartanir sem kunna að hafa borist. Óskað er upplýsinga um hversu langur tími að meðaltali hefur liðið frá því að kvörtun berst og þar til sá sem kvartar fær svar/afgreiðslu máls síns.
Svar

Vísað til umsagnar Strætó bs.