Fyrirspurn frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Upplýsingar um hávaða vegna bílaplans við Egilshöll í Grafarvogi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 21
12. desember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skipulags- og samgönguráði óska eftir upplýsingum um það hvort að íbúar hafi kvartað undan hávaða vegna bílaplans við Egilshöllina í Grafarvogi, þar sem áhugasamir ökuþórar hafa verið að nýta sér svæðið með tilheyrandi hávaða. Ef borist hafi kvartanir hversu margar hafa þær verið og hvernig hefur þeim þá verið svarað?  Vísað til Umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðstjóra.