Langholtsvegur 115,Rósa Sigrún Jónsdóttir, Langholtsvegur 115, 104 ReykjavíkHildur Steinþórsdóttir, Ásholt 28, 105 Reykjavíkbreyting á deiliskipulagi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 110
7. júlí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Hildar Steinþórsdóttur dags. 10. maí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Langholtsvegar og Drekavogar vegna lóðarinnar nr. 115 við Langholtsveg. Í breytingunni felst að heimilt verði að gera svalalokun yfir svalir á 1. hæð hússins ásamt því að nýtingarhlutfall er leiðrétt, samkvæmt uppdr. Hildar Steinþórsdóttur arkitekts dags. 3. maí 2021. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa dags. 3.maí 2021. 
Svar

Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs.

Gestir
Hrafnhildur Sverrisdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.