Skúlagötusvæði, breyting á deiliskipulagi vega breyttra skipulagsmarka við Snorrabraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 94
3. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lögð er fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis, samþykkt 13. maí 1986. Frá samþykkt hafa verið gerðar allnokkrar breytingar en sú nýjasta tók gildi þann 27. apríl 2020. Í breytingunni felst breyting á skipulagmörkum á austurenda svæðisins, nánar tiltekið deiliskipulagsmörk við Snorrabraut, vegna breytinga á aðliggjandi deiliskipulagi fyrir Hlemm og nágrenni. Þar stendur til að færa gatnamót Snorrabrautar ásamt borgarlandi inn í þá skipulagsáætlun, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 25. janúar 2021. Lagt er til að tillagan fari í auglýsingu.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir
Ingvar Jón Bates Gíslason verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.