Borgartúnsreitur vestur 1.216, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 94
3. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lögð er fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits vestur, afm. af Borgartúni, Snorrabraut, Sæbraut og Katrínartúni, samþykkt þann 7. apríl 2011. Þessi breyting felst í breyttum skipulagmörkum við Snorrabraut og Borgartún og er lögð fram vegna breytinga á aðliggjandi deiliskipulagi fyrir Hlemm og nágrenni. Breyta þarf gild. deiliskipulagi svo ekki verði skörun á skipulagsmörkum á milli deiliskipulagssvæða. Breytingin felur í sér að deiliskipulagsmörk eru færð að austurhlið lóðamarka Sætúns nr. 1. Þá eru deiliskipulagsmörk færð að lóðarmörkum lóða við Borgartún, það eru lóðir við Borgartún nr. 1, 3 og 7 ásamt suðurhlið lóðar við Sætún nr. 1, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 25. janúar 2021. Breytingin nær aðeins til götusvæða og borgarlands. Breyting á deiliskipulagi Hlemms og nágrennis verður auglýst samhliða þessari tillögu. Lagt er til að tillagan fari í auglýsingu.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir
Ingvar Jón Bates Gíslason verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.