Búland 1-31 2-40, kæra 126/2020, umsögn, úrskurður
Búland 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 97
10. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 1. desember 2020 ásamt kæru dags. 27. nóvember 2020 þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að ætla ekki að framfylgja þá þegar tekinni ákvörðun sinni um beitingu þvingunarúrræða gagnvart eigendum eignarinnar að Búlandi 36. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 6. janúar 2021. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 25. febrúar 2021. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 1. október 2020 um að afturkalla ákvörðun um beitingu þvingunarúrræða vegna framkvæmda á baklóð Búlands 36. Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 28. október 2020 um að aðhafast ekki vegna framkvæmda á baklóð Búlands 36.
108 Reykjavík
Landnúmer: 108758 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008910