Lækjargata 1, nýtt deiliskipulag
Lækjargata 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 111
25. ágúst, 2021
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Framkvæmdasýslu ríkisins dags. 14. október 2020 ásamt bréfi dags. 14. október 2020 um nýtt deiliskipulag fyrir lóðina nr. 1 við Lækjargötu, lóð forsætisráðuneytisins og stjórnarráðshússins, vegna áforma um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið fyrir starfsemi forsætisráðuneytisins, samkvæmt uppdr. Kurt og Pí ehf. dags. 31. mars 2021. Tillagan var auglýst frá 14. maí 2021 til og með 30. júní 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Herbertsprent ehf. dags. 21. júní 2021. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. ágúst 2021.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.

Landnúmer: 101319 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020779