Hraunbær 133, breyting á deiliskipulagi
Hraunbær 133
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 84
14. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Grímu arkitekta ehf. dags. 2. október 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunbæjar-Bæjarháls vegna lóðar nr. 133 við Hraunbæ. Í breytingunni felst að kvöð um stíg í gegnum byggingarreit B3 verði felld niður, samkvæmt uppdr. Grímu arkitekta ehf. dags. 30. september 2020.
Svar

Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur nú skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs.