Reitur 1.172.0 Brynjureitur, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 82
23. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.0 sem afmarkast af Laugavegi, Klapparstíg, Hverfisgötu og Vatnsstíg. Í breytingunni felst að mörkum deiliskipulagsins er breytt á þann hátt að í stað þess að mörkin liggi í miðri götu eru þau færð inn að lóðarmörkum við Laugaveg, Klapparstíg og Vatnsstíg, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 21. september 2020.
Svar

Samþykkt með fjórum greiddum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.Vísað til borgarráðs.

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.