Norðurstígur og Nýlendugata, kæra 45/2020, umsögn, úrskurður
Norðurstígur 3 (01.132)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 78
12. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 5. júní 2020 ásamt kæru dags. 5. júní 2020 þar sem kærð er fyrirhuguð framkvæmd við Norðurstíg sem kynnt var bréflega þann 6. maí sl. af umhverfis- og skipulagssviði. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 8. júní 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 3. júlí 2020. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar frá 29. maí 2020 um að veita framkvæmdaleyfi fyrir endurgerð á Norðurstíg milli Vesturgötu og Geirsgötu, svo og á Nýlendugötu á milli Norðurstígs og Ægisgötu.