Borgartúnsreitur Vestur 1.216, Guðrúnartún, breyting á deiliskipulagi vegna smáhýsa
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 53
6. nóvember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits Vestur 1.216 vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi: Guðrúnartún. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð, samkvæmt uppdr. Trípólí arkitekta dags. 28. október 2019. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Svar

Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins bókar: 

Gestir
Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.