Kirkjusandur, breyting á deiliskipulagi
Kirkjusandur 1 (01.34)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 44
21. ágúst, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags 4. júlí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kirkjusandi. Breytingin felst í því að lóðamörkum er breytt lítillega til að íbúðarhús uppfylli kröfur um bílastæði innan lóðar samkvæmt uppdrætti ASK Arkitekta ehf. dags 5. júlí 2019, breytt 15. ágúst 2019. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs.  Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.