Kvistaland 26, breyting á deiliskipulagi
Kvistaland 26 (01.862.3)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 35
17. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 11. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis, reitur 1.863.2, vegna lóðarinnar nr. 26 við Kvistaland. Í breytingunni felst að byggingarreit er breytt og hann stækkaður, byggingarmagn er aukið, lóðinni er skipt upp og afmörkuð er sér lóð fyrir spennistöð og almennur göngustígur sem liggur gegnum lóðina að norðanverðu flyst til norðurs vegna viðbyggingar norðan við núverandi hús, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 11. apríl 2019.  Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Svar

Rúnar Gunnarsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið

108 Reykjavík
Landnúmer: 108800 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014147