Hraunbær-Bæjarháls, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 21
12. desember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn a2f arkitekta ehf. dags. 30. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulags Hraunbæjar-Bæjarháls. Í breytingunni felst breyting á staðsetningu lóðar- og byggingarreits fyrir dreifistöð rafmagns, samkvæmt uppdr. a2f arkitekta ehf, dags. 22. nóvember 2018. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.  Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.